13.5.2009 | 10:11
lán með 0 vöxtum
Ég er einn þeirra sem fynnst bæði ríki og Bankar axla allt og litla ábyrgð á ástandinu í þjóðfélaginu það er gjördamlega búið að gjöreiðileggja öll fyrirtæki í landinu með ofurvöxtum og óðaverðbólgu sem hvergi finnst í löndum í hringum okkur og á sama tíma og seðlabankinn er að skoða hvort það megi lækka vexti í landinu þar sem enginn verðbólga er nema tilbúinn af ríkinu er Sænski Handelsbankinn að bjóða Svíum lán upp á 100.000 sænskar vaxtalaust í eitt ár að þeim tíma liðnum borga menn til baka 100.000 eða breyta því í lán með hóflegum vöxtum hvað eru bankarnir að gera á Íslandi til að koma fyrirtækjum í gang aftur eða að reisa þau upp aftur ?
Ef menn sem voru með hófleg lán í bönkum fyrir skemmdarverkin í október fara í bankann núna segir bankinn þú ert með allt og mikil lán ertu með meiri veð eða hefuru hugleitt að fara í gjaldþrot, þau eru mismunandi viðhorfin sem bankar hafa á Norðurlöndunum
kveðja Axel Kverngrjóti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2009 | 09:03
kvóta hvað
Goðan daginn ef það reynist satt sem sagt er um skuldir okkar erum við tæknilega gjaldþrot allavega eins og ég lærði það skuldir okkar erlendis eru um rúmlega helmingi hærri en eignir erlendis.
Mér dettur þetta í hug vegna aðgerða núverandi og væntanlegra nýju ríkistjórnar hún virðist ætla að fara einhverskonar fyrningarleið með sjávarútveginn til að ná kvótanum til þjóðarinnar í sjávarútvegi , en á sama tíma er hún að setja lög til að festa kvóta í mjólkurframleiðslu sem er allveg í þveröfuga átt miðað við evrópubandalagið sem hefur ákveðið að afnema kvóta í mjólkuriðnaði árið 2015, ekki nóg með það það á að beita sektum á afurðarstöðvar 110 krónur pr lítra sem afurðarstöð tekur við utan kvóta og með bóndann á að beyta hegningarlögum sektum eða fangelsi ,ég verð að segja hverslags endemis rugl er í þessu fólki kynnir það sér ekkert hvað þessar aðgerðir hafa á þá sem verða fyrir þessu, báðar þessar aðgerðir eru til að gjöreiðileggja undirstöðuatvinnuvegina okkar og færa okkur um 50 ár til baka í allri þróun í báðum atvinnugreinum svona bull á ekki eftir að hjálpa þessu þjóð út úr þeim hremmingum sem við erum í ,þetta verður til að minnka alla framleiðslu í mjólkuriðnaði sem er þvert á ráðleggingar alþjóða matvælastofnunarinnar sem hvetur allar þjóðir til að auka matvælaframleiðslu til að komast hjá hungursneyð í framtíðinni mig minnir að þeir hafi gefið út að það þyrfti að aukast um 20% milli ára næstu ár.
Til gamans má geta að smjör í evrópu er á tvöföldu verði miðað við á Íslandi og meðalverð á mjólk er um 160 krónur pr líter.
Ef við myndum flytja þessar vörur inn myndu þær hækka töluvert frá þessum tölum sökum fluttnings og álagninga innflytjanda ,þar fyrir utan er ekki til gjaldeyri til að flytja inn þessar vörur innfluttningur á mjólkurvörum til Íslands hleypur á tugum milljarða ef við myndum ekki framleiða þessar vörur sjálf og um 10.000 manns myndu missa atvinnuna, sem bætist við þá sem missa vinnuna í sjávarútvegi ef aðgerðir þar myndu líka verða að veruleika fyrir utan hvaða áhrif það hefði á byggðir í landinu , skyldi ríkistjórninn hugsa eitthvað á þessum nótum
kveðja ú Dölunum Axel Kverngrjóti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2009 | 15:34
Ekki allveg heill eða hvað
Ég hef verið að hugsa mikið um stóra hvelinn í október eins og aðrir landsmenn og mig langar að vita hvað þessir blessaðir þingmenn okkar og yfirmenn í ríkisfyrirtækjum og fyrirtækjum sem eru í þágu almennings eins og Bændasamtök Íslands lífeyrissjóðir,bankayfirmenn og fleiri ætla að gera í launamálum.
Hugleiðingar þessar eru nú tilkomnar vegna þess að Bændasamtök Íslands eru núna þessa dagana að fara hringferð um landið og kynna fyrir bændum nýjan samning við ríkið sem felur í sér töluverðar tekjuskerðingu þetta er tilkomið vegna þess að ríkið sveik þann samning einhliða sem bændur eru með og gildir til 2012, bændur tóku á sig mikla tekjuskerðingu árið 2008 bæði í mjólkurbændur og sauðfjárbændur .
Á sama tíma hef ég ekkert heyrt hvað þessir höfðingjar hafa ákveðið að laun þeirra skerðist á sama tíma, sem er auðvita rökrétt þar sem þeir þyggja laun af okkur sem eru ekki að fá sömu tekjur og getum þar af leiðandi ekki borgað þeim sömu laun .
Svona í leiðinni væri gaman að vita afhverju Fjármálaráðherra og Landbúnaðarráðherra er skráður með lögheimili í Þistilfirði þó hann sé búinn að búa í meira en áratug í Seljahverfi í Breiðholti kemur þetta einhvað við tekjur hjá þingmönnum hvar þeir eru með lögheimili og eru ekki einhver lög um að þar sem menn eru með búsetusé lögheimili skráð það virðist vera sama hver er í stjórn menn eru aðalega að hugsa um eiginn hag.
Til að ná eðlilegri skiptingu í þjóðarbúinu ættum við að nota sama skiptahlut og er notaður í fiskiskipum einn hlut einn og kvart, einnog hálfan og tvo sem væri þá fyrir þingmenn ráðherr,bankastjóra og forseta og menn í ábyrgðarstöðum.
kveðja úr Dölunum Axel oddsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Axel Oddsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar